Það sem þið þurfið:
Magn: Innihald:
- 3,5 d hveiti
- 3 dl sykur
- 2 og 1/4 tsk matarsóti
- 1/4 tsk salt
- 1 og 1/4 dl kakó
- 1,5 dl matarolía
- 1 og 3/4 dl mjólk
- 2 stk egg
- 1,5 dl kaffi (kalt,volgt)
- 1/2 tsk vanilludropar
Skref:
- Hitið ofninn að 170° á blæstri, smyrjið og leggjið smjörpappírinn í botninn (mynd 1&2).
- Blandaðu fyrstu fimm hráefnunum saman í meðal stóra skál, setjið til hliðar.
- Í stóra skál hrærðu saman matarolíu, mjólk og eggjunum. Á meðan þú hrærir bættu við kaffinu í bunu og vanilludropunum. Hrærðu vel.
- Heltu þurrefnablöndunni við vökvablönduna. Nú verðuru að passa að hræra ekki meira en 30 sec strax og þetta er orðið að sléttum ''vökva'' hættu þá að hræra taktu fram sleikju og skafðu vel niður og að botninum og hliðarnar. EKKI OFHRÆRA. blandan er rosalega þunn, ekki stressa þig á því.
- Skiptu blöndunni á milli 8 ''inch'' forma. Hvaða form henar. Skelltu síðan kökunni inn í ofn í 35 min ca. Stingdu í hana til þess að gá hvort hún sé nokkuð blaut í miðjunni. þú veist að kakan er tilbúinn þegar tannstöngli er stungið í miðjuna og er hreinn þegar þú tekur hann út, eða þegar kakan er byrjuð að draga sig frá forminu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli