fimmtudagur, 24. júlí 2014

Einfalt og fljótlegt ''Soda bread''

Æðislegt brauð sem ALLIR ættu að geta og prófa :) þetta brauð er súper einfalt og tók mig ekki nema 10 mín að setja það smana og henda inn í ofn. þú getur sett alskonar krydd í það og ''spæsað'' það aðeins upp. Lang best þegar það er enn heitt með smjöri og osti.
Endilega deilið þessu og látið mig vita hvað þið viljið að ég búi til næst :)

Það sem þú þarft:

200g heilhveiti
275g hveiti
350ml Súrmjólk, ef þú átt ekki súrmjólk þá
 mælir þú ekki alveg 350ml af nýmjólk/léttmjólk rétt um 340ml og settur síðan 2-3msk af borðedik og hrærir því saman við
1 kúfúlla tesk. af matarsóda
1 stórt egg
1 tesk. hunang
 dass af salti


Aðferð:

  1.  Byrjaðu á því að hita ofninn að 190° og á blástri. legðu síðan niður smjörpappir á ofnskúffuna þína.
  2.  Mældu öll þurefnin saman í stóra skál hrærðu því smá saman og setti til hliðar.
  3.  Í ml glas hrærðu saman súrmjólkina, eggið og hunangið.
  4.  Búðu því næst til ''holu'' í hvetið og heltu súrmjólksblöndunni beint í ''holuna''
  5. Hrærðu síðan allt rosalega vel saman annað hvort með hendinni eða sleif. Ef degið er rosalega blautt og klístrað bættu við smá hveiti.
  6. skelltu deginu beint á ofnskúffuna stráðu smá hveiti ofan á (bara fyrir skraut) og inn í ofn í u.þ.b 30-35 min. 





























Bkv. Elín :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli