föstudagur, 8. ágúst 2014

Súkkulaðibitakökur !

Jæjja langt síðan ég setti inn seinast svo ég kem með eitthvað ''extra special''. Hér að neðan eru BESTU súkkulaðibitakökur sem ég hef smakkað lengi, mæli eindregið með þeim og að þið prófið þessa einföldu uppskrift.

Magn:                                                                     Innihald:

2 1/4 bolli                                                Hveiti
1 tsp                                                        Salt
1 tsp                                                        Lyftiduft
1/8 tsp                                                     Kanill
2 stk                                                        Egg
1 tsp                                                        Vanilludropar
225 gr                                                      Ósaltað smjör,stofuhita
¾ bollar                                                   Sykur
¾ bollar                                                   Púðursykur
2 bollar                                                    Suðusúkkulaði



Aðferð:

  1. Byrjaðu á því að hita ofninn að 180°, legðu smjörpappir á ofnskúffurnar þínar.
  2. Í litla skál blandaðu saman fyrstu 4 hráefnunum.
  3. Í stóra skál byrjaðu að blanda saman smjörinu og sykrinum þangað til létt og ljóst, ca. 3-5 min. Bættu síðan eggjunum við einu í einu og þar á eftir vanilludropunum. Hræra VEL. Skafðu reglula á milli niður skálina með sleikju.
  4. Bættu síðan þurrefnablöndunni við og hrærðu í svona 10-15 sekúndur, eða þar til þú sérð ekkert hvítt hveiti í eggja og smjör-blöndunni, passa sig að ekki ofhræra. Núna loksins máttu bæta við súkkulaðinu, öllu í einu og hræra aðeins í örfáar sekúndur.
  5. Núna máttu byrja að móta súkkulaðibitakökurnar, mér þykir þæginlegast að nota ísskeið og þá eru þær allar jafn stórar og bakast allair eins.
  6. Nú er bara að skella þeim inn í ofn og baka í u.þ.b 8-10 min, strax og þær eru orðanar ljós-brúnar á könntunum og ofan á flýttu þér þá að taka þær úr ofninum. Ekki taka þær strax af heitri plötunni, þær halda áfram að bakast á henni. Eftir svona ca. 10 min máttu setja þær á grind og leifa þeim að kólna.

     



    Hér er ég að nota hálfan poka af
     Reese's súkkulaði bitum og 100gr af suðusúkkulaði






mánudagur, 28. júlí 2014

Djöflatertubotnar

Jæjja þá er komið að uppáhalds djöflatertubotnunum mínum, alveg eins og Betty, ég sver fyrir það, ef eitthvað þá eru þeir betri ;)) Þetta er súper einfalt en hér að neðan mun ég aðeins setja inn botnana, ef þið viljið uppskriftina að kremunum sem ég setti á milli og yfir endilega látið mig vita.

Það sem þið þurfið:

         Magn:                                       Innihald:

  • 3,5 d                                          hveiti
  • 3 dl                                            sykur
  • 2 og 1/4 tsk                               matarsóti
  • 1/4 tsk                                       salt
  • 1 og 1/4 dl                                 kakó
  • 1,5 dl                                         matarolía
  • 1 og 3/4 dl                                 mjólk
  • 2 stk                                          egg
  • 1,5 dl                                         kaffi (kalt,volgt)
  • 1/2 tsk                                       vanilludropar


Skref:
  1. Hitið ofninn að 170° á blæstri, smyrjið og leggjið smjörpappírinn í botninn (mynd 1&2).
  2. Blandaðu fyrstu fimm hráefnunum saman í meðal stóra skál, setjið til hliðar.
  3. Í stóra skál hrærðu saman matarolíu, mjólk og eggjunum. Á meðan þú hrærir bættu við kaffinu í bunu og vanilludropunum. Hrærðu vel.
  4. Heltu þurrefnablöndunni við vökvablönduna. Nú verðuru að passa að hræra ekki meira en 30 sec strax og þetta er orðið að sléttum ''vökva'' hættu þá að hræra taktu fram sleikju og skafðu vel niður og að botninum og hliðarnar. EKKI OFHRÆRA. blandan er rosalega þunn, ekki stressa þig á því.
  5. Skiptu blöndunni á milli 8 ''inch'' forma. Hvaða form henar. Skelltu síðan kökunni inn í ofn í 35 min ca. Stingdu í hana til þess að gá hvort hún sé nokkuð blaut í miðjunni. þú veist að kakan er tilbúinn þegar tannstöngli er stungið í miðjuna og er hreinn þegar þú tekur hann út, eða þegar kakan er byrjuð að draga sig frá forminu.








fimmtudagur, 24. júlí 2014

Einfalt og fljótlegt ''Soda bread''

Æðislegt brauð sem ALLIR ættu að geta og prófa :) þetta brauð er súper einfalt og tók mig ekki nema 10 mín að setja það smana og henda inn í ofn. þú getur sett alskonar krydd í það og ''spæsað'' það aðeins upp. Lang best þegar það er enn heitt með smjöri og osti.
Endilega deilið þessu og látið mig vita hvað þið viljið að ég búi til næst :)

Það sem þú þarft:

200g heilhveiti
275g hveiti
350ml Súrmjólk, ef þú átt ekki súrmjólk þá
 mælir þú ekki alveg 350ml af nýmjólk/léttmjólk rétt um 340ml og settur síðan 2-3msk af borðedik og hrærir því saman við
1 kúfúlla tesk. af matarsóda
1 stórt egg
1 tesk. hunang
 dass af salti


Aðferð:

  1.  Byrjaðu á því að hita ofninn að 190° og á blástri. legðu síðan niður smjörpappir á ofnskúffuna þína.
  2.  Mældu öll þurefnin saman í stóra skál hrærðu því smá saman og setti til hliðar.
  3.  Í ml glas hrærðu saman súrmjólkina, eggið og hunangið.
  4.  Búðu því næst til ''holu'' í hvetið og heltu súrmjólksblöndunni beint í ''holuna''
  5. Hrærðu síðan allt rosalega vel saman annað hvort með hendinni eða sleif. Ef degið er rosalega blautt og klístrað bættu við smá hveiti.
  6. skelltu deginu beint á ofnskúffuna stráðu smá hveiti ofan á (bara fyrir skraut) og inn í ofn í u.þ.b 30-35 min. 





























Bkv. Elín :)

miðvikudagur, 23. júlí 2014

Hvar á ég að byrja? Hugmyndir?

Súkkulaði cupcake með hvítu smjörkremi.
Hér að neðan eru nokkrar myndir af því sem ég hef búið til. Ég vil endilega fá hugmyndir um hvað þið viljið sjá og hvað ég ætti að byrja á að sýna/''kenna''.
 Endilega commentið hér að neðan :)
súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði.

súkkulaðikaka á 2 hæðum með hvítu og fjólubláu smjörkremi.

Vanillukaka á 2 hæðum með hvítu og bláu smjörkremi.

Glúteinlaus súkkulaðikaka 2 hæðum með súkkulaði smjörkremi.

Maltesers kaka frá henni Berglindi (gotteri og gersemar).

Vanillu cupcakes með hvítu smjörkremi.

Karamellur.

 Vanillukaka á 2 hæðum smjörkrem á milli og meðfram, síðan skreytt með heimatilbúnum sykurpúðamassa,
sem var litaður með matarlit.

Vanillukaka 2 hæðum með fjólubláu smjórkremi.

 Fór á námskeið til hennar Berglindar (Gotteri og gersemar)

Ostakaka, 17. Júní.
.

 Afmæliskakan okkar Vésteins, 6 hæða súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi á milli og meðfram,
skreytt með enn meiru smjörkremi :))



Nutella brownies. 
Redvelvet cupcakes með hvítu smörkremi.