mánudagur, 28. júlí 2014

Djöflatertubotnar

Jæjja þá er komið að uppáhalds djöflatertubotnunum mínum, alveg eins og Betty, ég sver fyrir það, ef eitthvað þá eru þeir betri ;)) Þetta er súper einfalt en hér að neðan mun ég aðeins setja inn botnana, ef þið viljið uppskriftina að kremunum sem ég setti á milli og yfir endilega látið mig vita.

Það sem þið þurfið:

         Magn:                                       Innihald:

  • 3,5 d                                          hveiti
  • 3 dl                                            sykur
  • 2 og 1/4 tsk                               matarsóti
  • 1/4 tsk                                       salt
  • 1 og 1/4 dl                                 kakó
  • 1,5 dl                                         matarolía
  • 1 og 3/4 dl                                 mjólk
  • 2 stk                                          egg
  • 1,5 dl                                         kaffi (kalt,volgt)
  • 1/2 tsk                                       vanilludropar


Skref:
  1. Hitið ofninn að 170° á blæstri, smyrjið og leggjið smjörpappírinn í botninn (mynd 1&2).
  2. Blandaðu fyrstu fimm hráefnunum saman í meðal stóra skál, setjið til hliðar.
  3. Í stóra skál hrærðu saman matarolíu, mjólk og eggjunum. Á meðan þú hrærir bættu við kaffinu í bunu og vanilludropunum. Hrærðu vel.
  4. Heltu þurrefnablöndunni við vökvablönduna. Nú verðuru að passa að hræra ekki meira en 30 sec strax og þetta er orðið að sléttum ''vökva'' hættu þá að hræra taktu fram sleikju og skafðu vel niður og að botninum og hliðarnar. EKKI OFHRÆRA. blandan er rosalega þunn, ekki stressa þig á því.
  5. Skiptu blöndunni á milli 8 ''inch'' forma. Hvaða form henar. Skelltu síðan kökunni inn í ofn í 35 min ca. Stingdu í hana til þess að gá hvort hún sé nokkuð blaut í miðjunni. þú veist að kakan er tilbúinn þegar tannstöngli er stungið í miðjuna og er hreinn þegar þú tekur hann út, eða þegar kakan er byrjuð að draga sig frá forminu.








fimmtudagur, 24. júlí 2014

Einfalt og fljótlegt ''Soda bread''

Æðislegt brauð sem ALLIR ættu að geta og prófa :) þetta brauð er súper einfalt og tók mig ekki nema 10 mín að setja það smana og henda inn í ofn. þú getur sett alskonar krydd í það og ''spæsað'' það aðeins upp. Lang best þegar það er enn heitt með smjöri og osti.
Endilega deilið þessu og látið mig vita hvað þið viljið að ég búi til næst :)

Það sem þú þarft:

200g heilhveiti
275g hveiti
350ml Súrmjólk, ef þú átt ekki súrmjólk þá
 mælir þú ekki alveg 350ml af nýmjólk/léttmjólk rétt um 340ml og settur síðan 2-3msk af borðedik og hrærir því saman við
1 kúfúlla tesk. af matarsóda
1 stórt egg
1 tesk. hunang
 dass af salti


Aðferð:

  1.  Byrjaðu á því að hita ofninn að 190° og á blástri. legðu síðan niður smjörpappir á ofnskúffuna þína.
  2.  Mældu öll þurefnin saman í stóra skál hrærðu því smá saman og setti til hliðar.
  3.  Í ml glas hrærðu saman súrmjólkina, eggið og hunangið.
  4.  Búðu því næst til ''holu'' í hvetið og heltu súrmjólksblöndunni beint í ''holuna''
  5. Hrærðu síðan allt rosalega vel saman annað hvort með hendinni eða sleif. Ef degið er rosalega blautt og klístrað bættu við smá hveiti.
  6. skelltu deginu beint á ofnskúffuna stráðu smá hveiti ofan á (bara fyrir skraut) og inn í ofn í u.þ.b 30-35 min. 





























Bkv. Elín :)

miðvikudagur, 23. júlí 2014

Hvar á ég að byrja? Hugmyndir?

Súkkulaði cupcake með hvítu smjörkremi.
Hér að neðan eru nokkrar myndir af því sem ég hef búið til. Ég vil endilega fá hugmyndir um hvað þið viljið sjá og hvað ég ætti að byrja á að sýna/''kenna''.
 Endilega commentið hér að neðan :)
súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði.

súkkulaðikaka á 2 hæðum með hvítu og fjólubláu smjörkremi.

Vanillukaka á 2 hæðum með hvítu og bláu smjörkremi.

Glúteinlaus súkkulaðikaka 2 hæðum með súkkulaði smjörkremi.

Maltesers kaka frá henni Berglindi (gotteri og gersemar).

Vanillu cupcakes með hvítu smjörkremi.

Karamellur.

 Vanillukaka á 2 hæðum smjörkrem á milli og meðfram, síðan skreytt með heimatilbúnum sykurpúðamassa,
sem var litaður með matarlit.

Vanillukaka 2 hæðum með fjólubláu smjórkremi.

 Fór á námskeið til hennar Berglindar (Gotteri og gersemar)

Ostakaka, 17. Júní.
.

 Afmæliskakan okkar Vésteins, 6 hæða súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi á milli og meðfram,
skreytt með enn meiru smjörkremi :))



Nutella brownies. 
Redvelvet cupcakes með hvítu smörkremi.

þriðjudagur, 22. júlí 2014

Aðeins um mig, og hvað ég mun vera að setja her inn á

Hæ hæ, Elín heiti ég og er 16 ára stelpa frá Garðabæ. Í haust mun ég halda í MK og læra þar bakarann. Það er nú eigninlega þess vegna sem ég ákvað að byrja að blogga um bakstur og allt sem tengist honum.

Hér mun ég setja inn alskonar uppskriftir af kökum, cupcakes (bollakökum), kremum, smákökum, ostakökum o.fl. Með hverri uppskrift verður einskonar ''skref fyrir skref'' og myndir til þess að auðvelda baksturinn til muna. Ég vona að þið fylgist með og prufið ykkur áfram.

Bkv. Elín Olsen